Skip to content
Zix
  • Þjónusta
    Þjónusta

    Allt sem reksturinn þarf á netinu.

    Vefur, hýsing, markaðssetning, gervigreind og fjarskipti á einum stað.

    Sjá alla þjónustu
    • Vefsíðugerð og vefverslanir Sérhannaðar vefsíður og vefverslanir
    • Branding Merki, litir og heildarútlit
    • Markaðsráðgjöf Herferðir og stafræn markaðssetning
    • Leitarvélabestun Sýnileiki á Google
    • Gervigreind og sjálfvirkni Spjallmenni og sjálfvirk ferli
    • Hýsing Örugg hýsing fyrir WordPress
    • Tölvupóstur Netföng og lén fyrir fyrirtækið
    • Vefumsjón Uppfærslur, viðhald og lagfæringar
    • Öryggi Vöktun og tvöfalt afrit
    • Fjarskipti Skiptiborð og símkerfi
  • Lausnir
    Lausnir

    Heildarlausnir fyrir reksturinn.

    Við setjum lausnirnar upp, tengjum þær saman og sjáum um þær.

    Sjá allar lausnir
    • Bókanir og viðburðir Bókunarkerfi og miðasala
    • Greiðslur og pantanir Greiðslugátt, áskriftir og pantanir
    • Samþættingar Tenging við CRM og bókhald
    • Sjálfvirk markaðssetning Tölvupóstar og SMS sem fara sjálfir
    • Streymi og margmiðlun Beinar útsendingar og textun
    • Hugbúnaðarlausnir Kerfi og smáforrit
  • Verkefni
Bóka fund
  • Þjónusta
    • Sjá alla þjónustu
    • Vefsíðugerð og vefverslanir
    • Branding
    • Markaðsráðgjöf
    • Leitarvélabestun
    • Gervigreind og sjálfvirkni
    • Hýsing
    • Tölvupóstur
    • Vefumsjón
    • Öryggi
    • Fjarskipti
  • Lausnir
    • Sjá allar lausnir
    • Bókanir og viðburðir
    • Greiðslur og pantanir
    • Samþættingar
    • Sjálfvirk markaðssetning
    • Streymi og margmiðlun
    • Hugbúnaðarlausnir
  • Verkefni
Bóka fund Hafa samband
Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga

Persónuverndarstefna Zix ehf.

Zix ehf. hefur sett sér stefnu varðandi meðferð persónuupplýsinga til að tryggja að félagið fari eftir lögum um persónuvernd og meðhöndlun persónugreinanlegra gagna. Starfsmenn okkar eru skuldbundnir til að fara með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og fá reglulega þjálfun í gagnavernd og gagnaöryggi auk þess sem kerfin okkar eru stillt á þannig að gögnin eru örugg. Hér á eftir útskýrum við hvernig við verndum gögnin þín og hvaða þýðingu það hefur fyrir þig.

Fyrirspurnir

Allar fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á netfangið personuvernd (hjá) zix.is

Vefkökur

Vefkökur (e. „cookies“) eru litlar textaskrár sem margar vefsíður nota, þar á meðal okkar. Vefkökur eru búnar til þegar þú heimsækir vefsíðurnar og netþjónninn okkar setur þær á harða diskinn þinn. Kökurnar okkar innihalda ekki persónuupplýsingar og aðrar vefsíður geta ekki lesið upplýsingar sem eru geymdar í kökum frá okkur. Að auki geta aðeins okkar netþjónar lesið kökurnar frá okkur en ekki annarra vefsíðna.

Flestir vafrar eru stilltir á að taka sjálfvirkt við kökum. Viljir þú ekki njóta ávinningsins af kökum getur þú afvirkjað þennan eiginleika í vafranum þínum. Þú getur líka skoðað vefsíðuna okkar án þess að nota kökur, en það getur takmarkað suma eiginleika.

Kökur eru yfirleitt notaðar til þess að notandi þurfi ekki að slá inn notendanafn eða lykilorð eða breyta stillingum í hvert sinn sem hann heimsækir vefsíðu sem hann hefur áður skráð sig inn á.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum netvöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti.

Upplýsingar á heimasíðu Microsoft um hvernig hægt er að eyða kökum er hægt að finna hér og hér er hægt að finna hvernig þú eyðir kökum í Chrome.

Vefmælingar

Zix ehf. notar Google Analytics til vefmælinga á vefjum sínum. Við hverja komu inn á vefinn okkar eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir o.fl. Engar tilraunir eru eða verða gerðar til að komast yfir frekari upplýsingar um hverja komu eða tengja saman við persónugreinanlegar upplýsingar.

Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila

Zix ehf. deilir ekki persónugreinanlegum gögnum um þig með þriðja aðila. Við skuldbindum okkur til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og munum ekki miðla á nokkurn hátt upplýsingum sem skráðar hafa verið í ofangreindum tilgangi til þriðja aðila án þíns samþykkis eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg aðgangsgögn, þ.e. hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi og hvaðan og þess háttar er greint fyrir tölulegar upplýsingar. Þetta notum við svo til að betrumbæta vefinn okkar. Lesa má nánar um Google Analytics hér

Afturköllunarréttur

Þú hefur rétt á að afturkalla samþykki þitt fyrir notkun Zix ehf. á persónuupplýsingum þínum.

Þú getur hvenær sem er farið fram á að Zix ehf. breyti, hætti að nota eða eyði persónugreinanlegum gögnum um þig.

Ef þú ert skráður notandi bjóðum við þér að skoða persónugreinanlegu gögnin þín sjálfur og eyða þeim eða breyta að vild, en þú getur einnig haft samband við okkur. Við viljum þó taka það fram að við eyðum ekki gögnum án þess að fá það staðfest að þú ert þú.

Hlekkir

Vefsíðurnar okkar geta innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Þótt við gerum okkar ítrasta til að athuga þessa beinu hlekki, berum við ekki ábyrgð á efni vefsíðanna sem við hlekkjum á. Að auki berum við enga ábyrgð á efni vefsíðna sem hlekkja á okkar vefsíðu.

SSL-skilríki

Vefir okkar eru með SSL-skilríki til að gera samskipti og gagnaflutning í gegnum þá öruggari.

SSL-skilríki veita vörn fyrir svokölluðum „millimannsárásum“, en með þeim geta óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum síðuna, eins og t.d. lykilorð eða greiðslu- og bankaupplýsingar. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda og vefþjóns dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Takmarkanir

Zix ehf. áskilur sér rétt til að breyta þessum reglum um gagnavernd hvenær sem er í samræmi við ákvæði gagnaverndarlaga. Við breytingu þarft þú að samþykkja skilmálana aftur.

Zix

Vefsíðugerð, hýsing, markaðsráðgjöf, gervigreind og fjarskipti fyrir fyrirtæki. Allt á einum stað.

Bóka fund

Þjónusta

  • Vefsíðugerð og vefverslanir
  • Branding
  • Markaðsráðgjöf
  • Leitarvélabestun
  • Gervigreind og sjálfvirkni
  • Hýsing
  • Tölvupóstur
  • Vefumsjón
  • Öryggi
  • Fjarskipti

Lausnir

  • Bókanir og viðburðir
  • Greiðslur og pantanir
  • Samþættingar
  • Sjálfvirk markaðssetning
  • Streymi og margmiðlun
  • Hugbúnaðarlausnir

Zix

  • Bóka fund
  • Hafa samband

Höfundarréttur © 2017 – 2026 – Öll réttindi áskilin – Zix ehf.

  • Skilmálar
  • Persónuvernd

Hafa samband

Sendu okkur línu og við höfum samband fljótlega.

Spjallaðu við okkur

  1. Lokaðu þessum glugga og smelltu á spjallbóluna neðst í horninu á skjánum.
  2. Skrifaðu spurninguna þína eða skilaboðin og sendu.
  3. Við svörum þér í spjallinu eins fljótt og við getum.

Viltu frekar hringja? Síminn er 547 1100