Þjónusta

Netöryggi og afritun

Netöryggi, vöktun alla daga ársins og tvöfalt afrit, svo gögnin þín og reksturinn séu alltaf örugg.

  • 24/7

    Vöktun alla daga ársins

  • Tvöfalt afrit

    Geymt í 7 og 30 daga

  • ISO/IEC 27001

    Vottað gagnaver

  • SSL

    Dulkóðuð samskipti

Innifalið

Öryggi sem vinnur í bakgrunni.

  • Vöktun

    Vöktunin lætur okkur vita um leið og eitthvað fer úrskeiðis og við bregðumst strax við.

  • Tvöfalt afrit

    Annað afritið er geymt í 7 daga og hitt í 30 daga, svo hægt er að endurheimta vefinn.

  • Öryggisuppfærslur

    Kerfi og viðbætur eru uppfærð reglulega til að loka öryggisgöllum.

  • SSL-skilríki

    Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð.

  • Vottað gagnaver

    Hýst í gagnaveri í Evrópu sem er vottað samkvæmt ISO/IEC 27001:2013.

  • Aukið öryggi

    Vefir í þjónustu hjá okkur eru settir upp með auknu öryggi.

Ef eitthvað gerist

Svona bregðumst við við.

Það skiptir mestu að bregðast hratt við og eiga góð afrit.

  1. Viðvörun

    Vöktunin lætur okkur vita um leið og eitthvað fer úrskeiðis.

  2. Greining

    Við finnum hvað gerðist og hvað þarf að gera.

  3. Endurheimt

    Ef þörf krefur endurheimtum við vefinn úr afriti, allt að 30 daga aftur í tímann.

  4. Upplýsingar

    Við látum þig vita hvað gerðist og hvað var gert.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um öryggi.

Finnurðu ekki svarið? Á 30 mínútna fundi förum við yfir málið saman.

Hversu örugg er hýsingin hjá ykkur?

Vefirnir eru hýstir í vottuðu gagnaveri í Evrópu og vaktaðir allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við tökum tvöfalt afrit: annað er geymt í 7 daga og hitt í 30 daga, svo hægt er að endurheimta vefinn eins og hann var fyrir viku eða mánuði. Öryggisuppfærslur eru settar inn reglulega og öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð með SSL-skilríki.

Hvað gerist ef vefurinn liggur niðri?

Vöktunin lætur okkur vita um leið og eitthvað fer úrskeiðis og við bregðumst strax við. Ef þörf krefur endurheimtum við vefinn úr afriti, allt að 30 daga aftur í tímann.

Hvar eru vefirnir hýstir?

Við hýsum vefsíður og veflausnir okkar í öruggu gagnaveri í Evrópu sem er vottað samkvæmt ISO/IEC 27001:2013, alþjóðlegum staðli um upplýsingaöryggi.

Tryggðu öryggi vefsins.

Á 30 mínútna fundi förum við yfir öryggið og afritunina hjá þér.

Bóka fund

Ókeypis og án skuldbindingar