Vefumsjón og viðhald
Reglulegar uppfærslur, lagfæringar og endurbætur sem halda vefnum hröðum, ferskum og í toppstandi. Við sjáum um vefinn svo þú getir sinnt rekstrinum.
-
Uppfærslur
Kerfi og viðbætur
-
24/7
Vöktun alla daga ársins
-
Tvöfalt afrit
Geymt í 7 og 30 daga
-
Einn tengiliður
Sem þekkir vefinn þinn
Vefurinn í toppstandi, alla daga.
-
Uppfærslur
WordPress, WooCommerce og viðbætur eru alltaf í nýjustu útgáfu.
-
Vöktun
Við vöktum vefinn allan sólarhringinn og bregðumst strax við ef eitthvað fer úrskeiðis.
-
Afritun
Tvöfalt afrit, geymt í 7 og 30 daga, svo hægt er að endurheimta vefinn.
-
Lagfæringar
Við lögum það sem bilar og sjáum til þess að allt virki sem skyldi.
-
Breytingar og efni
Við setjum inn nýtt efni og gerum breytingar þegar þú þarft á því að halda.
-
Hraði og endurbætur
Við höldum vefnum hröðum og bætum hann jafnt og þétt.
Við tökum við vefnum þínum.
Við tökum við vefjum sem aðrir hafa smíðað, uppfærum þá, lögum það sem er bilað og sjáum um rekstur og öryggi eftir það.
- Yfirferð á vefnum og öryggi hans
- Uppfærsla á kerfi og viðbótum
- Lagfæring á því sem er bilað
- Vöktun og tvöföld afritun
- Heiðarlegt mat ef betra er að smíða nýjan
Hugbúnaðarsetrið ehf. var stofnað 2012 sem vefverslun fyrir Adobe hugbúnað á Íslandi. Síðan höfum við skipt við þrjú fyrirtæki varðandi vefverslun, uppsetningu og viðhald. Fyrir rúmum tveimur árum fluttum við þessi viðskipti til Zix ehf. Þá loksins kynntumst við topp þjónustu, þar sem lögð var áhersla á að nota einfalda uppsetningu, vel skipulagða, vönduð tól og ekki vera með neinar sérskrifaðar lausnir. Þjónustan hefur verið frábær og verðin mjög sanngjörn.
Einar Erlendsson
Hugbúnaðarsetrið ehf.
Svona tökum við við vefnum.
-
Yfirferð
Við förum yfir vefinn, öryggið og það sem þarf að laga.
-
Tilboð
Þú færð fast tilboð og skýra áætlun áður en vinnan hefst.
-
Lagfæringar
Við uppfærum, lögum og setjum upp vöktun og afritun.
-
Rekstur
Við sjáum um vefinn eftir það, með einum tengilið.
Algengar spurningar um vefumsjón.
Finnurðu ekki svarið? Á 30 mínútna fundi förum við yfir málið saman.
Bjóðið þið upp á viðhald og stuðning?
Já. Allar vefsíður sem eru í þjónustu hjá okkur eru vaktaðar alla daga ársins og settar upp með auknu öryggi. Við tökum tvöfalt afrit, sem er geymt í 7 og 30 daga, og sjáum til þess að vefsíðan þín sé alltaf uppfærð og virki sem skyldi.
Getið þið tekið yfir núverandi vef?
Já. Við tökum við vefjum sem aðrir hafa smíðað, uppfærum þá, lögum það sem er bilað og sjáum um rekstur og öryggi eftir það. Ef vefurinn er orðinn of gamall segjum við þér það og ræðum hvort betra sé að smíða nýjan.
Get ég uppfært vefsíðuna sjálf eða sjálfur?
Já. Í WordPress og WooCommerce geturðu sett inn nýtt efni, breytt texta og myndum, bætt við síðum og haldið utan um vörur og pantanir. Þú færð sama stjórnandaaðgang og við, þannig að þú hefur fulla stjórn á vefsíðunni þinni.
Láttu okkur sjá um vefinn.
Á 30 mínútna fundi förum við yfir vefinn þinn og hvað þarf til að halda honum í toppstandi.
Bóka fundÓkeypis og án skuldbindingar