Stafræn þjónusta fyrir fyrirtæki
Vefsíðugerð, hýsing, markaðsráðgjöf, gervigreind og fjarskipti á einum stað. Einn tengiliður sem sér um allt, svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.
-
33 ára reynsla
Rúmlega, í stafrænum lausnum
-
Einn tengiliður
Fyrir allt sem snýr að netinu
-
Fast verð
Tilboð áður en vinnan hefst
-
24/7
Vöktun alla daga ársins
Allt sem reksturinn þarf á netinu.
-
Vefsíðugerð og vefverslanir
Hraðar vefsíður og vefverslanir sem aðlagast öllum skjástærðum, með öruggri greiðslusíðu, tengdar bókhaldi og lager.
-
Branding
Sterkt vörumerki sem lætur fyrirtækið standa upp úr í samkeppni, laðar að rétta viðskiptavini og vekur traust.
-
Markaðsráðgjöf
Sérsniðnar herferðir, leitarvélabestun og skapandi auglýsingar sem ná til réttra viðskiptavina á réttum tíma.
-
Leitarvélabestun
Tæknileg uppsetning og markviss greining, svo að viðskiptavinir sem leita að þér finni þig fyrst á Google.
-
Gervigreind og sjálfvirkni
Gervigreind sem svarar viðskiptavinum og bókar fundi, og sjálfvirk ferli sem tengja saman kerfi og spara tíma.
-
Hýsing
Sérhæfð hýsing fyrir WordPress og WooCommerce í vottuðu gagnaveri í Evrópu, með vöktun og tvöföldu afriti.
-
Tölvupóstur
Tölvupóstur og lén fyrir fyrirtækið, sett upp, hýst og vaktað á sama stað og vefurinn, með einum tengilið.
-
Vefumsjón
Reglulegar uppfærslur, lagfæringar og endurbætur sem halda vefnum hröðum, ferskum og í toppstandi.
-
Öryggi
Netöryggi, vöktun alla daga ársins og tvöfalt afrit, svo gögnin þín og reksturinn séu alltaf örugg.
-
Fjarskipti
Símkerfi og skiptiborð fyrir fyrirtæki sem virka hvar sem þú ert, svo að viðskiptavinir nái alltaf í réttan aðila.
Heildarlausnir fyrir reksturinn.
Við setjum lausnirnar upp, tengjum þær saman og sjáum um þær, svo þú getir einbeitt þér að viðskiptavinunum.
-
Bókanir og viðburðir
Fundarbókanir, tímapantanir og skráning á námskeið og viðburði, með staðfestingum og áminningum.
-
Greiðslur og pantanir
Kortagreiðslur, PayPal og Apple Pay, áskriftir og pantanir sem stýrast sjálfkrafa.
-
Samþættingar
Tengingar við CRM, bókhald og tímaskráningu, svo kerfin vinni saman.
-
Sjálfvirk markaðssetning
Tölvupóstar, tilkynningar og SMS sem fara sjálfkrafa út eftir hegðun viðskiptavina.
-
Streymi og margmiðlun
Beinar útsendingar, myndbönd og hljóð eftir pöntun, með sjálfvirkri textun.
-
Hugbúnaðarlausnir
Kerfi og farsímaforrit sem mæta þörfum fyrirtækisins og gera reksturinn einfaldari, hraðari og hagkvæmari.
Einn fundur og nokkur já. Við sjáum um afganginn.
-
Fundur
Á 30 mínútna fundi förum við yfir reksturinn, markmiðin og hvað þarf að gera.
-
Tilboð
Þú færð fast tilboð og skýran tímaramma áður en vinnan hefst.
-
Framkvæmd
Við vinnum verkið og þú fylgist með og segir þína skoðun á leiðinni.
-
Rekstur
Við sjáum um hýsingu, uppfærslur og öryggi eftir það, með einum tengilið.
Stutt svör við algengum spurningum.
Finnurðu ekki svarið? Á 30 mínútna fundi förum við yfir málið saman.
Hvað kostar að láta setja upp vefsíðu?
Verðið fer eftir umfangi verkefnisins. Við förum yfir þarfirnar og gerum fast tilboð áður en vinnan hefst. Bókaðu ókeypis fund og við finnum lausn sem hentar þér og fjárhagsáætluninni.
Hver á lénið og efnið?
Þú. Lénið er skráð á þitt fyrirtæki og er þín eign. Sama gildir um texta, myndir og gögn sem þú leggur til eða sem verða til í rekstri vefsins, til dæmis pantanir og viðskiptavinaskrár. Ef samstarfi lýkur afhendum við allt efni og öll gögn án endurgjalds og aðstoðum við flutning lénsins.
Hversu örugg er hýsingin hjá ykkur?
Vefirnir eru hýstir í vottuðu gagnaveri í Evrópu og vaktaðir allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við tökum tvöfalt afrit: annað er geymt í 7 daga og hitt í 30 daga, svo hægt er að endurheimta vefinn eins og hann var fyrir viku eða mánuði. Öryggisuppfærslur eru settar inn reglulega og öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð með SSL-skilríki.
Bjóðið þið upp á viðhald og stuðning?
Já. Allar vefsíður sem eru í þjónustu hjá okkur eru vaktaðar alla daga ársins og settar upp með auknu öryggi. Við tökum tvöfalt afrit, sem er geymt í 7 og 30 daga, og sjáum til þess að vefsíðan þín sé alltaf uppfærð og virki sem skyldi.
Getið þið tekið yfir núverandi vef?
Já. Við tökum við vefjum sem aðrir hafa smíðað, uppfærum þá, lögum það sem er bilað og sjáum um rekstur og öryggi eftir það. Ef vefurinn er orðinn of gamall segjum við þér það og ræðum hvort betra sé að smíða nýjan.
Gefðu okkur 30 mínútur. Við sjáum um afganginn.
Segðu okkur hvað reksturinn þarf. Þú færð heiðarleg ráð, fast tilboð og skýran tímaramma.
Bóka fundÓkeypis og án skuldbindingar