Skilmálar
Hér á eftir fara almennir viðskiptaskilmálar Zix ehf. Þeir gilda um öll viðskipti Zix ehf. við viðskiptavini, þar á meðal tilboð, samninga og þjónustu, nema um annað sé samið skriflega.
Zix ehf. getur breytt skilmálunum. Breytingar eru tilkynntar viðskiptavinum með 30 daga fyrirvara og birtar á þessari síðu.
1. Skilgreiningar
- Viðskiptavinur er fyrirtæki, stofnun eða einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu af Zix ehf.
- Samningur er hvers konar samningur milli Zix ehf. og viðskiptavinar, þar á meðal samþykkt tilboð.
- Verkefni er afmarkað verk sem unnið er samkvæmt tilboði, til dæmis smíði vefsíðu eða vefverslunar.
- Þjónusta er hýsing, tölvupóstur, vefumsjón, markaðsráðgjöf, fjarskipti og önnur þjónusta sem Zix ehf. veitir.
- Áskrift er þjónusta sem greitt er fyrir reglulega, til dæmis mánaðarlega eða árlega.
- Hugbúnaður þriðja aðila er hugbúnaður, viðbætur og þjónusta frá öðrum framleiðendum, til dæmis WordPress, WooCommerce og greiðslugáttir.
- Efni viðskiptavinar er texti, myndir, gögn og annað efni sem viðskiptavinur leggur til eða sem verður til í rekstri vefsins.
2. Gildissvið
Skilmálarnir gilda um allar vörur og þjónustu Zix ehf. Sérákvæði í samningi eða samþykktu tilboði ganga framar þessum skilmálum.
Um kaup einstaklinga utan atvinnurekstrar gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000, ef ákvæði þeirra eru neytendum hagstæðari en skilmálar þessir. Að öðru leyti gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 þar sem skilmálum þessum eða samningi sleppir.
3. Tilboð og samningar
Samningur telst kominn á þegar viðskiptavinur hefur samþykkt tilboð eða samning skriflega, til dæmis í tölvupósti.
Gildistími tilboðs kemur fram í tilboðinu. Hafi viðskiptavinur ekki samþykkt tilboð innan gildistímans er Zix ehf. ekki bundið af því.
Áskriftir og þjónustusamningar gilda í 12 mánuði nema um annað sé samið og framlengjast síðan um eitt ár í senn. Að fyrstu 12 mánuðunum liðnum má segja samningi upp með 3 mánaða fyrirvara. Uppsögn skal vera skrifleg og uppsagnarfrestur hefst um næstu mánaðamót eftir að hún berst.
4. Verð og greiðslur
Verð fer eftir samþykktu tilboði eða gildandi verðskrá Zix ehf. hverju sinni. Fyrir verkefni er að jafnaði samið um fast verð í tilboði áður en vinnan hefst.
Gjalddagi reiknings er 14 dögum eftir útgáfu hans og eindagi 6 dögum eftir gjalddaga. Sé greitt eftir eindaga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Hafi verið samið um greiðslu með greiðslukorti eru áskriftargjöld skuldfærð mánaðarlega. Takist skuldfærsla ekki getur Zix ehf. sent greiðsluseðil fyrir útistandandi fjárhæð.
Athugasemdir við reikning skulu berast innan 30 daga frá útgáfu hans. Sé ágreiningur um hluta reiknings má viðskiptavinur aðeins halda eftir þeirri fjárhæð sem ágreiningur er um.
Aukaverk, það er vinna sem fellur utan samnings eða tilboðs, eru unnin samkvæmt samkomulagi og greidd samkvæmt tímagjaldi í gildandi verðskrá.
Zix ehf. getur endurskoðað verð áskrifta og þjónustu, til dæmis vegna gengisbreytinga, breytinga á verði birgja eða breytinga á vísitölu neysluverðs. Verðbreytingar eru tilkynntar með 30 daga fyrirvara.
5. Verkefni og afhending
Í tilboði kemur fram hvað er innifalið í verkefni og áætlaður verktími.
Viðskiptavinur leggur til efni, svo sem texta, myndir og aðgangsupplýsingar, tímanlega. Tafir á efni geta seinkað afhendingu.
Breytingar á umfangi eftir að verkefni hefst eru unnar sem aukaverk nema um annað sé samið.
Verkefni telst afhent þegar vefurinn hefur verið settur í loftið eða viðskiptavinur hefur samþykkt hann. Athugasemdir við afhent verk skulu berast innan 14 daga frá afhendingu.
6. Hýsing og tölvupóstur
Zix ehf. hýsir vefi, veflausnir og tölvupóst í vottuðu gagnaveri í Evrópu.
Zix ehf. tekur tvöfalt afrit af hýstum vefjum. Annað er geymt í 7 daga og hitt í 30 daga. Zix ehf. getur þó ekki ábyrgst að afrit séu alltaf fullkomin og viðskiptavinum er ráðlagt að geyma sjálfir eintök af mikilvægum gögnum.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að efni sem Zix ehf. hýsir fyrir hann brjóti ekki gegn lögum eða réttindum annarra. Komi til slíkra brota getur Zix ehf. fjarlægt efnið eða lokað fyrir aðgang að því, sbr. 14. gr. laga nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
Óheimilt er að nota þjónustuna til að:
- dreifa ólöglegu eða skaðlegu efni eða efni sem brýtur gegn réttindum annarra;
- senda óumbeðinn fjöldapóst (ruslpóst);
- gera netárásir, skanna kerfi eða reyna að komast inn í kerfi án heimildar;
- dreifa spilliforritum eða veirum;
- valda óeðlilegu álagi sem truflar þjónustu við aðra viðskiptavini.
Zix ehf. metur hvort notkun brjóti gegn þessum reglum og getur lokað fyrir þjónustu ef svo er.
7. Vefumsjón og þjónustusamningar
Í þjónustusamningi kemur fram hvaða þjónusta er innifalin, til dæmis uppfærslur, vöktun og afritun. Þjónustustig sem þar er tilgreint er markmið Zix ehf. nema sérstaklega sé samið um annað.
Zix ehf. getur falið undirverktökum hluta þjónustunnar og ber ábyrgð á störfum þeirra gagnvart viðskiptavini.
8. Hugbúnaður þriðja aðila
Vefir Zix ehf. eru byggðir á þekktum hugbúnaði, svo sem WordPress og WooCommerce, ásamt viðbótum frá þriðja aðila. Um slíkan hugbúnað gilda leyfisskilmálar viðkomandi framleiðanda.
Leyfisgjöld fyrir hugbúnað þriðja aðila geta breyst í samræmi við verðskrá framleiðanda og gengi gjaldmiðla.
Zix ehf. ber ekki ábyrgð á villum, breytingum eða rekstrartruflunum hjá þriðja aðila, svo sem greiðslugáttum, lénaskráningum eða öðrum ytri þjónustum, en aðstoðar viðskiptavin við að leysa úr þeim.
9. Eignarhald og hugverkaréttur
Viðskiptavinur á lén sitt og allt efni sitt. Lén er skráð á fyrirtæki viðskiptavinar.
Þegar verkefni hefur verið greitt að fullu hefur viðskiptavinur full afnot af vefnum, hönnun hans og efni.
Zix ehf. heldur réttindum að eigin aðferðum, sniðmátum, kóða og þekkingu sem notuð eru í verkefnum og getur nýtt þau í öðrum verkefnum, án þess að upplýsingum um viðskiptavin sé miðlað.
Zix ehf. getur sýnt verkefni í verkasafni sínu nema viðskiptavinur óski eftir öðru.
10. Skyldur viðskiptavinar
Viðskiptavinur skal:
- veita réttar upplýsingar og þann aðgang sem þarf til að vinna verkið;
- gæta að aðgangsorðum sínum og láta Zix ehf. vita ef grunur er um misnotkun;
- tryggja að hann hafi rétt til að nota efni sem hann leggur til, svo sem myndir og texta;
- fara að lögum og reglum sem gilda um starfsemi hans, þar á meðal um persónuvernd og netverslun.
11. Ábyrgð og takmarkanir
Zix ehf. ber ábyrgð á að verk og þjónusta séu unnin af fagmennsku og í samræmi við samning.
Í viðskiptum við fyrirtæki er ábyrgðartími verka 12 mánuðir frá afhendingu. Í viðskiptum við neytendur gilda ákvæði laga um neytendakaup og þjónustukaup.
Zix ehf. ábyrgist ekki tiltekinn árangur, til dæmis ákveðna stöðu í leitarvélum eða tiltekna sölu.
Zix ehf. ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrartapi, töpuðum hagnaði eða gagnatapi, nema tjónið megi rekja til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis Zix ehf. Zix ehf. ber ekki heldur ábyrgð á tjóni sem viðskiptavinur eða þriðji aðili veldur, né á töfum eða niðritíma hjá þriðja aðila.
Ábyrgð Zix ehf. takmarkast í öllum tilvikum við þá fjárhæð sem viðskiptavinur hefur greitt Zix ehf. fyrir viðkomandi þjónustu síðustu þrjá mánuði áður en tjónið varð.
12. Óviðráðanleg atvik
Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem stafa af óviðráðanlegum atvikum (force majeure), svo sem náttúruhamförum, stríði, verkföllum, víðtækum netárásum, orkuskorti eða aðgerðum stjórnvalda.
13. Vanefndir
Sé reikningur ekki greiddur getur Zix ehf. stöðvað þjónustu þar til skuldin er greidd, 14 dögum eftir að viðskiptavini hefur verið send tilkynning um vanskilin.
Verulegar vanefndir, svo sem greiðsludráttur í meira en 30 daga eða brot á reglum um notkun hýsingar, veita Zix ehf. rétt til að rifta samningi.
Viðskiptavinur getur rift samningi ef Zix ehf. vanefnir hann verulega og bætir ekki úr innan 30 daga frá skriflegri áskorun.
14. Trúnaður
Zix ehf. gætir fyllsta trúnaðar um gögn og málefni viðskiptavina sem starfsfólk fær vitneskju um í starfi. Trúnaðarskyldan helst eftir að samningi lýkur.
Zix ehf. getur verið skylt samkvæmt lögum eða dómsúrskurði að afhenda yfirvöldum gögn. Komi til þess lætur Zix ehf. viðskiptavin vita án tafar, nema það sé óheimilt.
15. Persónuvernd
Zix ehf. vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Þegar Zix ehf. hýsir vef eða gögn sem innihalda persónuupplýsingar er Zix ehf. vinnsluaðili og viðskiptavinur ábyrgðaraðili. Aðilar geta gert sérstakan vinnslusamning.
Nánar um meðferð persónuupplýsinga: Persónuverndarstefna Zix ehf.
16. Lok samnings
Við lok samnings afhendir Zix ehf. viðskiptavini efni hans og gögn án endurgjalds og aðstoðar við flutning lénsins.
Zix ehf. varðveitir ekki gögn viðskiptavinar eftir að samningi lýkur og afhending hefur farið fram. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á að varðveita gögn sem honum er skylt að geyma, til dæmis bókhaldsgögn.
Ógreiddir reikningar falla í gjalddaga við lok samnings.
17. Framsal
Viðskiptavinur getur ekki framselt réttindi sín samkvæmt samningi nema með skriflegu samþykki Zix ehf.
18. Lög og varnarþing
Um skilmála þessa og samninga Zix ehf. gilda íslensk lög. Aðilar leitast við að leysa ágreining með samkomulagi. Takist það ekki skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Spurningar um skilmálana? Hringdu í síma 547 1100 eða sendu okkur skilaboð í spjallinu hér á vefnum.